Fagráðstefna skógræktar 2012

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Föstudagur, 27. janúar 2012 14:05

rleynitre-gmFagráðstefna skógræktar verður haldinn 27. – 29. mars nk. á Fosshótelinu Húsavík. Dagskráin verður að einhverju leyti blönduð en ríflega helmingur erinda verður tengt þemanu: Tegundir, kvæmi og klónar í íslenskri skógrækt. Fyrst og fremst verður um nýjar rannsóknarniðurstöður og upplýsingar að ræða. Meðal efnis sem þegar liggur fyrir er erindi um kvæmaval stafafuru, fjallaþins, skógarfuru og sitkagrenis byggt á nýjum mælingum á misjafnlega gömlum kvæmatilraunum. Flutt verður erindi um kynbætur á alaskaösp og skoðuð almenn reynsla af notkun elris á Íslandi.

Lesa nánar: Fagráðstefna skógræktar 2012

 

Viðgerðir á landi eftir akstur utan vega

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Mánudagur, 23. janúar 2012 13:59

Ljótar skemmdir eftir akstur utan vega. Ljósmynd: Anna Sigríður ValdimarsdóttirMörg verkefni bíða lagfæringar á skemmdum á landi eftir akstur utan vega. Unnið er að þróun aðferða við að gera við slíkar skemmdir og þróun leiðbeininga um hvernig best er að standa að verki við ólíkar aðstæður.

 

 

Lesa nánar: Viðgerðir á landi eftir akstur utan vega

   

Opin málstofa um inntak og áherslur nýrra laga um landgræðslu

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Fimmtudagur, 19. janúar 2012 09:13

Uppgróið land sem áður var örfoka og gróðursnautt. Ljósmynd: Magnús H. Jóhannsson.

Nefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra landgræðslulaga boðar til málstofu í Þjóðminjasafninu í Reykjavík, fimmtudaginn 26. janúar kl. 14:00 – 16:00.

Þar mun formaður nefndarinnar, Daði Már Kristófersson dósent við hagfræðideild Háskóla Íslands hafa framsögu og síðan verða opnar umræður.

Tilgangur málstofunnar er að kynna vinnu nefndarinnar og fá ábendingar og tillögur sem nýst geta við áframhaldandi vinnu.

Málstofan er öllum opin og eru allir sem áhuga hafa á landgræðslu hvattir til að mæta.

Lesa nánar: Opin málstofa um inntak og áherslur nýrra laga um landgræðslu

   

Síða 1 af 112